Thursday, September 13, 2012

Hitt og þetta :D

Hallo Hallo :D

Næstum því mánuður síðan ég kom til Argentínu og ég er búin að upplifa svo mikið og enginn heimþrá enn sem komið er :) Man ekki dagsetningarnar en hér er svona smá blogg um hitt og þetta :)

Heimsókn á spítalann
Fór með foreldrum mínum að heimsækja bróður pabba míns því hann og kona hans voru að eignast lítinn dreng :) svakalega mikið krútt, en ég get ekki sagt það sama um spítalann.... hann var frekar nasty haha. Herbergið sem þau voru í var frekar lítið og það var ótrúlega sveitt þar inni, veggirnir sprugnir og klósettið frekar ógirnilegt. Foreldrar mínir voru að reyna að útskýra fyrir mér að það væru allveg til svona 5 stjörnu spítalar í Argentínu og að þetta væri bara svona lala spítali.
Leo og Ceci (foreldrar mínir) :D


Argentískt Afmæli
Mér var boðið í afmæli hjá systur vinkonu minnar og auðvitað fór ég :) afmælin hér er svoldið öðruvísi en heima á Íslandi. Það koma allir í fjölskyldunni , vinir afmælisbarnsins og vinir fjölskyldunnar saman og tala um hitt og þetta og svo er svakaleg grillveisla. Kjöt og meira kjöt, brauð salad og meiri matur... og svo auðvitað risa kaka í eftirrétt haha. Þegar allir eru svo búnir að borða og jafna sig eftir matinn fara vinir afmælisbarnsins og afmælisbarnið niður í bæ og djamma fara kl svona 11 og koma ekki heim fyrr en 8 um morguninn :D ekki slæmt en ég fór heim eftir matinn enda var ég frekar þreytt. Pabbi vinkonu minnar, vinkona mín og kærasti systur vinkonu minnar löbbuðu með mér heim, því það er ekki örugt að labba einn úti svona seint á kvöldinn. Það leinast hættur á hverju strái...

Eldaði Íslenskan mat
Ég var búin að ákveða að elda fyrir fjölskylduna mína en ég vissi auðvitað ekki um neina búð og það var frekar erfitt að finna það sem mig vantaði en vinkonur mínar voru svo sætar í sér að labba með mér fram og til baka í leit að því sem mig vantaði. og það tók frekar langann tíma að finna sveppi því þeir eru oftast ekki til á þessum árstíma. Og að útskýra fyrir þeim ostinn sem mig vantaði . Hann er aðalatriðið fyrir utann kjótið. Ég eldaði að sjálfsögðu brúnar karteflur (kareflur með sykri) og osta pipar sveppasósu :) það var mjög erfitt að finna lamakjöt svo ég eldaði kjúkkling. kjúkkling fyltan með rjómaosti og beikon utanum, og svo salad með mmmm :D Þeim fanst það mjög gott (RICO) og voru ánægð með matinn og vinkona mín var líka í mat.

Búðarkaup
Fór með vinkonu minni um helgina að versla og skoða bæinn. Við fórum út um allt og ég keypti voðalega sæta blómakápu og hún keypti eins haha. Við tókum svo strætóinn í mollið og fengum okkur að borða og leituðum að kjól handa mér, því við stelpurnar erum að fara út á lífið á næstunni. En þessi stelpa má ekki fara út á lífið því hún er trúuð, og hún má ekki stunda kynlíf fyrr en eftir giftingu og þess háttar. En eftir langa leit að rétta dressinu fundum við loksins rétta kjólin og skartið við :)

Svaf yfir mig
í dag svaf ég yfir mig... ekki gott en ég verð að játa að ég var frekar slöpp í gærkvöldi og svoldið óglatt. En eftir að ég kvíldi mig lagaðist það :) Fór ekki skólann því það tók því ekki að fara, en ég labbaði samt að skólanum og beið fyrir utan til að hitta krakkana og labba með þeim heim, það var ekkert annað að gera haha. Hitti svo frænku Telmu ( systir Telmu átti afmæli). Ég ákvað svo að fara að labba um bæinn og reina að rata eithvað á eigin spítur, gekk voða vel fyrst en svo villtist ég auðvitað og var í marga tíma að reyna að finna húsið mitt... aldrei verið eins glöð að fara heim haha.

Þangað til næst
-Ragnhildur :D