Monday, October 22, 2012

Menningarsjokk :)

Góðan og blessaðan daginn

Það er orðið svoldið langt síðan ég bloggaði svo ég ætla að segja ykkur í stuttu máli hvað ég hef verið að bralla uppá síðkastið.

Ég fór semsagt í ferðalag með fjölskyldunni minni til Catamarca að hitta ættingja mömmu minnar. og það var frekar fyndið hvað þau voru óskipulögð. Ætluðum að leggja af stað kl 2 en fórum kl 4, það var svo ekki nógu mikið svefnpláss fyrir okkur öll svo bræður mínir sváfu hjá frænkunnu en við fengum yfirgefið hús og gamlar dýnur sem hafa öruglega verið úti í svona 5 ár haha. Öðruvísi upplifun haha, en það sem hélt fyrir mér vöku voru moskító flugur og pöddur sem skriðu á gólfinu og dýnan var heldur ekki allveg að gera sig en þetta var þó betra en ekkert. En daginn eftir sagði ég þeim hvað ég hefði sofið illa útaf dýnunni þannig að ég fékk að skipta við bróður minn næstu nótt :) Fljölskylda mömmu minnar var æðisleg og við skemmtum okkur vel, en það komu samt svona móment sem mér leiddist. Þau fóru með mig upp í fjöllinn og við systkinin fengum að fara á kayak og við borðuðum svo pizzu um kvöldið. Við gistum 3 nætur en Catamarca er ekki beinlínis nálægt Buenos Aires, (Það tekur svona sirka 10 tíma að keyra aðra leiðina). Þega við héldum svo heim á leið stoppuðum við aftur í Cordóba hjá annari frænku mömmu minnar til að hvíla okkur og svo fengum við okkur að borða í Rosario og við tókum auðvitað myndir. Catamarca er lítill bær en fólkið sem býr þar er mjög trúað. Þau fóru með mig í kirkjuna og ég fékk að skoða allaveg helling.

Ég gleymi aldrei kvöldinu þegar ég fór í nudd. Nuddstofan leit frekar vel út og mér leist bara nokkuð vel á staðinn, og ekki slæmt að hann er sirka 5 mín frá blokkinni minni svo ég labbaði auðvitað. Nuddbekkurinn frekar venjulegur og nuddkonan segir að ég þurfi ekki að fara úr nærfötunum og ég eigi að leggjast á bekkinn. Sem var bara mjög venjulegt en svo fékk ég ekkert lak til að breiða yfir mig og það var frekar mikið ljós inni og tónlistin var eins og á FM957 haha og svo hlustaði nuddkonan á rokk tónlist í ipodnum sýnum svo það gerði það að verkum að ég hlustaði á 2 tegundir af tónlist með ljósin kveikt og ekkert lak :)

Við erum 5 skiptinemar í Buenos Aires, Ítali, Þjóðverji, Svisslendinur, og ein stelpa sem ég veit ekki allveg hvaða er og svo auðvitað einn Íslendingur. Ég planaði seinustu helgi hitting með þeim og Þjóðverjinn og Svisslendingurinn mættu og við fengum okkur að borða og fórum í bío. Ég var búin að segja að það væri stórt CINEMA í Puerto Madero sem við ætluðum að fara í bío en ég vissi ekkert hvar það var svo við löbbuðum bara og spurðum fólk til vegar. Vel gert Ragnhildur. En við vorum öll svo chilluð og þetta reddaðist. Horfðum á Taken 2 sem er allveg ágæt mynd en fyrsta myndin er miklu betri :)

Ef það rignir mikið þá eru flestir heima hjá sér og sleppa skólanum ekki allveg eins og á Íslandi. Við sem erum vön allskonar veðri haha. Ég fór ekki í skólann í dag því ég er búin að vera veik og því það er rigning. Skólarnir eru líka ekki beinlínis með heitar skólastofur og ef það er kalt úti þá er 2 sinnum kaldara inni í skólastofunni og svo þegar skólinn byrjar þurfa allir að standa í röð og horfa á eitthvern flagga fána og segja góðan daginn. Við megum alldrei fara fyrr heim ekki einusinni 5 mínútur en það mæta flestir of seint. Er líka semí búin að venjast öllum þessum krúttlegu heimilslausu hundum og þessu heimilislausa fólki. En lenti í því um daginn þegar ég var með stelpunum á Mc donalds að einn maður kom upp að mér og bað mig um pening en stelpurnar sögðu nei við hann svo hann fór.

hef ekki mikið annað að segja svo þetta er gott í bili. :)