Monday, October 22, 2012

Menningarsjokk :)

Góðan og blessaðan daginn

Það er orðið svoldið langt síðan ég bloggaði svo ég ætla að segja ykkur í stuttu máli hvað ég hef verið að bralla uppá síðkastið.

Ég fór semsagt í ferðalag með fjölskyldunni minni til Catamarca að hitta ættingja mömmu minnar. og það var frekar fyndið hvað þau voru óskipulögð. Ætluðum að leggja af stað kl 2 en fórum kl 4, það var svo ekki nógu mikið svefnpláss fyrir okkur öll svo bræður mínir sváfu hjá frænkunnu en við fengum yfirgefið hús og gamlar dýnur sem hafa öruglega verið úti í svona 5 ár haha. Öðruvísi upplifun haha, en það sem hélt fyrir mér vöku voru moskító flugur og pöddur sem skriðu á gólfinu og dýnan var heldur ekki allveg að gera sig en þetta var þó betra en ekkert. En daginn eftir sagði ég þeim hvað ég hefði sofið illa útaf dýnunni þannig að ég fékk að skipta við bróður minn næstu nótt :) Fljölskylda mömmu minnar var æðisleg og við skemmtum okkur vel, en það komu samt svona móment sem mér leiddist. Þau fóru með mig upp í fjöllinn og við systkinin fengum að fara á kayak og við borðuðum svo pizzu um kvöldið. Við gistum 3 nætur en Catamarca er ekki beinlínis nálægt Buenos Aires, (Það tekur svona sirka 10 tíma að keyra aðra leiðina). Þega við héldum svo heim á leið stoppuðum við aftur í Cordóba hjá annari frænku mömmu minnar til að hvíla okkur og svo fengum við okkur að borða í Rosario og við tókum auðvitað myndir. Catamarca er lítill bær en fólkið sem býr þar er mjög trúað. Þau fóru með mig í kirkjuna og ég fékk að skoða allaveg helling.

Ég gleymi aldrei kvöldinu þegar ég fór í nudd. Nuddstofan leit frekar vel út og mér leist bara nokkuð vel á staðinn, og ekki slæmt að hann er sirka 5 mín frá blokkinni minni svo ég labbaði auðvitað. Nuddbekkurinn frekar venjulegur og nuddkonan segir að ég þurfi ekki að fara úr nærfötunum og ég eigi að leggjast á bekkinn. Sem var bara mjög venjulegt en svo fékk ég ekkert lak til að breiða yfir mig og það var frekar mikið ljós inni og tónlistin var eins og á FM957 haha og svo hlustaði nuddkonan á rokk tónlist í ipodnum sýnum svo það gerði það að verkum að ég hlustaði á 2 tegundir af tónlist með ljósin kveikt og ekkert lak :)

Við erum 5 skiptinemar í Buenos Aires, Ítali, Þjóðverji, Svisslendinur, og ein stelpa sem ég veit ekki allveg hvaða er og svo auðvitað einn Íslendingur. Ég planaði seinustu helgi hitting með þeim og Þjóðverjinn og Svisslendingurinn mættu og við fengum okkur að borða og fórum í bío. Ég var búin að segja að það væri stórt CINEMA í Puerto Madero sem við ætluðum að fara í bío en ég vissi ekkert hvar það var svo við löbbuðum bara og spurðum fólk til vegar. Vel gert Ragnhildur. En við vorum öll svo chilluð og þetta reddaðist. Horfðum á Taken 2 sem er allveg ágæt mynd en fyrsta myndin er miklu betri :)

Ef það rignir mikið þá eru flestir heima hjá sér og sleppa skólanum ekki allveg eins og á Íslandi. Við sem erum vön allskonar veðri haha. Ég fór ekki í skólann í dag því ég er búin að vera veik og því það er rigning. Skólarnir eru líka ekki beinlínis með heitar skólastofur og ef það er kalt úti þá er 2 sinnum kaldara inni í skólastofunni og svo þegar skólinn byrjar þurfa allir að standa í röð og horfa á eitthvern flagga fána og segja góðan daginn. Við megum alldrei fara fyrr heim ekki einusinni 5 mínútur en það mæta flestir of seint. Er líka semí búin að venjast öllum þessum krúttlegu heimilslausu hundum og þessu heimilislausa fólki. En lenti í því um daginn þegar ég var með stelpunum á Mc donalds að einn maður kom upp að mér og bað mig um pening en stelpurnar sögðu nei við hann svo hann fór.

hef ekki mikið annað að segja svo þetta er gott í bili. :)

Thursday, September 13, 2012

Hitt og þetta :D

Hallo Hallo :D

Næstum því mánuður síðan ég kom til Argentínu og ég er búin að upplifa svo mikið og enginn heimþrá enn sem komið er :) Man ekki dagsetningarnar en hér er svona smá blogg um hitt og þetta :)

Heimsókn á spítalann
Fór með foreldrum mínum að heimsækja bróður pabba míns því hann og kona hans voru að eignast lítinn dreng :) svakalega mikið krútt, en ég get ekki sagt það sama um spítalann.... hann var frekar nasty haha. Herbergið sem þau voru í var frekar lítið og það var ótrúlega sveitt þar inni, veggirnir sprugnir og klósettið frekar ógirnilegt. Foreldrar mínir voru að reyna að útskýra fyrir mér að það væru allveg til svona 5 stjörnu spítalar í Argentínu og að þetta væri bara svona lala spítali.
Leo og Ceci (foreldrar mínir) :D


Argentískt Afmæli
Mér var boðið í afmæli hjá systur vinkonu minnar og auðvitað fór ég :) afmælin hér er svoldið öðruvísi en heima á Íslandi. Það koma allir í fjölskyldunni , vinir afmælisbarnsins og vinir fjölskyldunnar saman og tala um hitt og þetta og svo er svakaleg grillveisla. Kjöt og meira kjöt, brauð salad og meiri matur... og svo auðvitað risa kaka í eftirrétt haha. Þegar allir eru svo búnir að borða og jafna sig eftir matinn fara vinir afmælisbarnsins og afmælisbarnið niður í bæ og djamma fara kl svona 11 og koma ekki heim fyrr en 8 um morguninn :D ekki slæmt en ég fór heim eftir matinn enda var ég frekar þreytt. Pabbi vinkonu minnar, vinkona mín og kærasti systur vinkonu minnar löbbuðu með mér heim, því það er ekki örugt að labba einn úti svona seint á kvöldinn. Það leinast hættur á hverju strái...

Eldaði Íslenskan mat
Ég var búin að ákveða að elda fyrir fjölskylduna mína en ég vissi auðvitað ekki um neina búð og það var frekar erfitt að finna það sem mig vantaði en vinkonur mínar voru svo sætar í sér að labba með mér fram og til baka í leit að því sem mig vantaði. og það tók frekar langann tíma að finna sveppi því þeir eru oftast ekki til á þessum árstíma. Og að útskýra fyrir þeim ostinn sem mig vantaði . Hann er aðalatriðið fyrir utann kjótið. Ég eldaði að sjálfsögðu brúnar karteflur (kareflur með sykri) og osta pipar sveppasósu :) það var mjög erfitt að finna lamakjöt svo ég eldaði kjúkkling. kjúkkling fyltan með rjómaosti og beikon utanum, og svo salad með mmmm :D Þeim fanst það mjög gott (RICO) og voru ánægð með matinn og vinkona mín var líka í mat.

Búðarkaup
Fór með vinkonu minni um helgina að versla og skoða bæinn. Við fórum út um allt og ég keypti voðalega sæta blómakápu og hún keypti eins haha. Við tókum svo strætóinn í mollið og fengum okkur að borða og leituðum að kjól handa mér, því við stelpurnar erum að fara út á lífið á næstunni. En þessi stelpa má ekki fara út á lífið því hún er trúuð, og hún má ekki stunda kynlíf fyrr en eftir giftingu og þess háttar. En eftir langa leit að rétta dressinu fundum við loksins rétta kjólin og skartið við :)

Svaf yfir mig
í dag svaf ég yfir mig... ekki gott en ég verð að játa að ég var frekar slöpp í gærkvöldi og svoldið óglatt. En eftir að ég kvíldi mig lagaðist það :) Fór ekki skólann því það tók því ekki að fara, en ég labbaði samt að skólanum og beið fyrir utan til að hitta krakkana og labba með þeim heim, það var ekkert annað að gera haha. Hitti svo frænku Telmu ( systir Telmu átti afmæli). Ég ákvað svo að fara að labba um bæinn og reina að rata eithvað á eigin spítur, gekk voða vel fyrst en svo villtist ég auðvitað og var í marga tíma að reyna að finna húsið mitt... aldrei verið eins glöð að fara heim haha.

Þangað til næst
-Ragnhildur :D

Tuesday, August 28, 2012

Komin til Argentínu

Sæl og Blessuð hér kemur bloggið sem þið hafið verið að bíða eftir :D

Ferðalagið var frekar langt til Argentínu, við skiptinemarnir flugum til New York og þurftum að bíða á flugvellinum í 10 tíma, við tókum eitthverskonar lest á næsta stað og í millitíðinni fórum við í sólbað, það var örgulega svona 30 stiga hiti þar :) við spiluðum PÓKO á flugvellin (notuðum boltan sem Benedikt vann í svona tæki til að veiða hluti). Við flugum svo til Buenos Aires og fluvélin þangað var frekar rúmgóð og svona 5 sæti saman :) Þegar við komum svo til Buenos Aires biðu AFS sjálfboðaliðarnir og tóku á móti okkur. Og þar hittum við skiptinema frá USA. Fórum svo í "CAMPIÐ" ég var eini íslendingurinn í mínu campi (það voru 3 þannig). Þar voru skiptinemar frá öllum löndum og ég deildi herbergi með bandarískri stelpu :) Það var rosa gaman,ég var eiginlega mest  með bandarísku krökkunum og þau sögðu bara að ég væri líka ameríkani haha. Við fórum í marga leiki og svo um kvöldið var svona talent show og ég var með þeim. Kvöldið eftir var kareoki og svo dönsuðum við heil lengi og skemmtum okkur Argentine style :)

Sofnaði kl 2 um nótt og vaknaði kl 5 :/ var frekar þreytt en samt spennt að hitta fósturfjölskylduna :) við fórum á bus station og biðum þar og svo fóru sumir í rútum og flugvélum en ég var sótt. Það var allveg smá stress en þau voru svo hress og skemmtileg að stressið hvarf um leið :) Við fjólskyldan fórum svo á staðin sem pabbinn spilar íshokkí og við horðum og það var frekar gaman, hann skorðaði 2 mörk og liðið hans vann :) þar hitti ég svo besta vin hans og við töluðum heil lengi saman og það var ekki amalegt hvað hann var myndalegur :) en svo fengum við okkur að borða og guuð hvað kjötið er gott :), fórum svo í bío um kvöldið og ef ykkur finnst bíoið í egilshöllinni stórt þá finnst ykkur bíóið hér huge og skjárinn hér er svona 4 sinnum stærri en stærsti skjárinn í egilshöllinni. :) (horðum á batman) og myndirnar hér eru ensku með spænsku texta. BTW það er roslega kallt hérna það er náttúrlega vetur en það er úlpu veður og ég sem sagði að ég væri að fara í sólina haha. en það eru allir í skónum inni og húsin eru hituð upp með gasi held ég og það er rosalega kallt inni. Næsta dag þuust í gær fór ég með mömmu minni og við fórum að versla sem var voða gaman verslunarmiðstöðvarnar eru svo stórar og það er mac donald og hellingur meira að segja starbuks :D. pabbi minn keyrði mig svo í höfuðborgina svo ég gæri farið og skokkað haha þau eru svo nice og svo mikil krútt. guuð ég kveikti óvart í bolnum mínum haha, skoo ofnarnir hér eru ekki eins og heima heldur er svona eldur í ofninum og ég var með bolin á snúru og setti snúruna og nálægt haha það var frekar fyndið. er búin að gera svo  mikið en nenni ekki að vera að skrifa allt og ég efast að þið nennið að lesa svo  mikið. En ég er ekki byrjuð í skólanum en er að fara á eftir og tala við skólastjórann og svona og ég byrja á morgunn :) btw það eru trúðar út um allt á götunum að kasta boltum og svona þegar það er rautt ljós. en guuuð klósettinn það er sem betur fer venjulegt klósett þar sem ég bý, en oftast þarf maður að henda klósettpappírnum í rusl  hliðin á . en það er samt svona mini klósett til að skola sig eftirá ef þið vitið hvað ég meina haha ojjj, en þetta er greynilega venjulegt hér. set myndir seinna inná :) sorry með stafsetnigarvillurnar er að skrifa hratt haha

Þamgað til næst Ragnildur :D :D :D


Thursday, August 16, 2012

Fjölskyldan komin í hús :D

Loksins loksins, eftir langa og óþolinmóða bið get ég loksins sagt að ég sé komin með fjölskyldy :D Hún samanstendur af hjónum og tveim strákum.

Pabbinn heitir : Leonardo Galbal og er 35 ára
Mamman heitir : Ana Cecilia Mac Corquodale og er 29 ára
Eldri bróðirinn heitir : Luciano Mendos og er 11 ára
Yngri bróðirinn heitir : Ramiro Mendos og er 9 ára



Fjölskyldan býr á höfuðborgarsvæðinu (Buenos Aires) svo það verður svaka steik á sumrin :D Ég fæ sér herbergi, þannig að ég þarf ekki að deila herbergi með strákunum :D Við erum búin að vera að tala saman og þau eru  voða spennt að fá mig, eru búin að segja mér í hvaða skóla ég fer og að ég muni útskrifast og fara í útskriftarferð :D :D :D þau tala ekki mikla ensku, þannig ég vona bara að ég muni komast fljótar inn í málið. Haha pabbinn var eitthvað að reyna  að tala við mig á íslensku og hann notaði google translate btw og það gekk frekar brussulega og ég skildi ekki neitt haha. Litli strákurinn Ramiro er voða spentur að fá að spila fótbolta með mér og ég sem hef ekki sparkað í bolta í rúmlega 2 ár haha. Þau ferðast voða mikið og þessi jól 2012 ætla þau til Mexico :D :D :D svo ég er að fara til Mexico. Mér líst bara nokkuð vel á þessa fjölskyldu og ég get ekki beðið eftir að fara til Argentínu eftir VIKU :D

 

Þangað til næst :D


Sunday, July 22, 2012

Fyrsta bloggið :D

Blessuð og sæl
Ég heiti Ragnhildur Guðmundsdótti og er 17 ára ung snót sem býr í Reykjavík og ég er að fara sem skiptinemi alla leið til Suður-Ameríku árið 2012-2013 í leit af ógleymanlegu ævintýri sem mun vera krefjandi og ótrúlega skemmtilegt. Ég er því miður EKKI komin með fjólskyldu, enda eru Argentínubúar ekkert að flýta sér í þessu.. taka bara öllu  mjög rólega og gera allt á seinustu stundu haha, en vonandi fer þetta að koma :D

Afhverju Argentína?
Þetta byrjaði allt með því að það komu sjálfboðaliðar frá AFS, tvær ungar stúlkur sem kynntu okkur krökkunum fyrir þessu og deildu reynslu sinni og sögðu okkur frá þeirra skiptinemadvöl og hvað þetta væri allt saman geðveikt. Ég var voða opin fyrir þessu enda var ég búin að pæla í þessu löngu áður :) En ég vissi ekki allveg hvert mig langaði að fara en það fyrsta sem mér datt í hug voru Bandaríkin og Amerískar bíómyndir. Hvernig það væri að búa í Ameríku og fá að upplifa allt sem maður hefur séð í bíómyndum haha.
En svo langaði mig fara eitthvert lengra, enda hef ég farið til Bandaríkjanna áður. Og þá hugsaði ég um Nýja-sjáland og Argentínu, en ég er svo hrifin af spænskunni að Argentína varð fyrir valinu. Ég er mjög ánægð með valið og ég get ekki beðið eftir að fá fjölskyldu og byrja þetta ævintýri af fullum krafti :D