Sael og blessud, thad hefur verid svoldid langt sídan ég bloggadi seinast og bidst ég afsokunar á thví. thad er bara búid ad vera svo mikid ad gera hjá mér.
Ferdalagid med skiptinemunum
(01-02-2012)
Fyrsta febrúar var komid af thví ad leggja af stad til Túcumán, thar sem skiptinemar allstadar ad í Argentínu aetludu ad hittast ádur en vid faerum til Mendoza og á hina stadina. Ég gét sagt ad ferdin hjá mér hafi byrjad skrautlega. Thar sem ég thurfti ad labba med risa ferdatosku á rútustodina í 40 stiga hita og rútunni seinkadi um 4 tíma til Tucumán. Eftir rúmlega 18 tíma rútuferd annan febrúar (02-02-2013) var Gummi (íslenski skiptineminn í Tucumán) bídandi á rútustodinni til thess ad taka á móti mér. Vid fórum svo til Davíds (thýski skiptineminn í Tucumán) og tókum thví rólega. Eftir smá stund kom Claus (thýski skiptineminn í Salta) til Davíds og vid fengum okkur ad borda. lobbudum svo adeins um baeinn í Tucumán og svo um kvoldid hittust allir skiptemarnir sem aetludu í ferdina og héldum vid svo til Mendoza.
(03-02-2013)
Thegar vid vorum svo komin til Mendoza eftir 16 tíma rútuferd med skemmtilegu lidi, blasti vid okkur sól og gott vedur. Ég hafdi rútumatinn minn med mér sem ég aetladi ad gefa fólkinu á gotunni. En thar sem vid forum beint med toskurnar á hostelid og ekkert fólk á gotunni var honum hent. Vid forum svo í mollid og fengum okkur ad borda. Sídan hittum vid skiptinemana í Mendoza og skodudum vid almenningsgardana og drukkum mate (jurtate med skrítnu rori). Um kvoldid ákvádum ég og Vilma (finnska stelpan í Tucumán) ad taka okkur smá gongutúr sem endadi med thví ad vid hlupum og oskrudum alla leid á hostleid. Vid sáum nefnilega vodalega skrítinn mann á hjóli sem hjóladi vodalega asnalega í allar áttir og bara frekar krípí. Vid laeddumst fram hjá honum mjog lúmskar thar sem thad var enginn tharna a gotunum nema vid og thessi krípí madur. Og thegar vid vorum á leidinni til baka komum vid auga a mann í holraesinu og tha urdum vid mjog hraeddar og drifum okkur á hostelid med látum, en láum í hláturkasti eftirá.
(04-02-2013)
Snemma um morguninn fórum vid upp á rútustod til thess ad fara til Chile, stadur sem ég hélt ad ég myndi aldrei fara til. Og enn og aftur margir tímar í rútu. Vid thurftum ad bída í rúmlega 4 tíma vid landamaerin og máttum vid ekki taka med okkur ávexti, graenmeti né kjot vegna smitsjúkdóma milli landa. Thegar vid vorum svo loksins komin til Chile med stimpil og alles fórum vid upp á hostelid. Fjolskyldan mín var bún ad vara mig viod thví ad thad vaeri mikil fátaekt í Chile, og thad sem blasti vid okkur fyrir framan hostelid var madur í engu nema naerbuxum sitjandi a gotunni skadbrunninn og í milum sársauka, hann gat varla hreyft sig. Ég get sagt af vid hofum thad bara gott á Íslandi. Um kvoldid fórum á stondina og ákvádu strákarnir ad hlaupa eins langt út í átt ad sjónum og bída sem lengst thangad til oldurnar kaemu og bruna svo upp á strondina. Eftir smá skodunarferd á strondina forum vid á veitingarstad og thar var frekar myndalegur thjonn sem finnska stelpan var ad fíla í taetlur.
(05-02-2013)
Vid stelpurnar Vilma (finnska stelpan), Clara (danska stelpan í Jujuy) og Cacelia (thýska stelpan í Jujuy) voknudum kl 8 og tokum daginn snemma. Bordudum á hostelinu og nádum okkur í kort af Viña del mar (stadurinn sem vorum á í Chile) og lobbudum í mollid. Skodudum margt og mikid og fengum okkur dýrindis jógúrtís. Eftir hádegi tókum vid svo straetó á hostelid til thess ad saekja sundfotin og drífa okkur á strondina. Thar hittum vid alla hina og ákvad Belen (sjálfbodalidi) ad koma med okkur en hinir fóru í mollid en aetludu svo ad hitta okkur á strondinni. Tókum helling af myndum og sóludum okkur í góda vedrinu. Sjórinn var frekar heitur og oldurnar voru svo svakalega háar og kroftugar, ad thegar vid fórum út í sjóinn ýttu oldurnar okkur upp á strondina. Eftir nokkra tíma komu svo hinir, vid lékum okkur á strondinni og skemmtum okkur vel, enda skemmtilegur hópur. Strákarnir keyptu bolta og byrjudu ad leika vid einn heimilslausan hund, med theim afleidingum ad hundurinn eydilagdi boltann. Seinna um kvoldis komum vid auga á saeljón í sjónum mjog nálaegt strondinni. Og ákvádu Benni (íslenski skiptineminn í Tucumán), Davíd (thýski skiptineminn í Tucumán) og Claus (thýski skiptineminn í Salta) ad vera voda snidugir og synda til saeljónsins og Benni med upptokumyndavélina sína. Thegar oldurnar komu gat madur séd allt dýrid í midri oldunni og their út um allan sjó. Seinna fórum vid svo á skemmtistad sem var inni í spilavíti, og thar gerdust hlutir sem held ad séu best geymdir thar.
(06-02-2013)
Seinasta daginn í Chile fórum vid svo á markadi og keyptum minjagripi. Ég keypti eitt skotglas med mynd af Chile. Fórum svo í lest á eyjunni til Valpariso sem er annar stadur á eyjunni. Lobbudum vid upp risa stiga med flottum settningum og svo á útsýnidpall med útsýni yfir fátraekrahúsin í fjollunum, vodalega flott. Thar var einnig vodalega skrítinn hundur sem ég held svei mér thá ad hann hafi verid á eitthverju. Gummi eda Gúmí eins og hann er kalladur hér (íslenski skiptineminn) taladi vid eitthverja konu sem sagdi okkur ad koma okkur burt thví thad vaeri bara tímaspursmál hvenaer eitthver kaemi og raendi okkur. Vid drifum okkur og thá lenti ég í thví thegar ég var ad tala vid finnsku stelpuna ad thad kemur madur labbandi á móti okkur vodalega rólega og svo allt í einu kippir hann í myndavélina mína. En sem betur fer var ég med myndavélabandid utan um hendina mína svo hann nádi ekki ad STELA henni. Og kallinn hjóp svo burt. Pokkudum svo um kvoldid thí naesti stadur var Mendoza thar sem vid aetludum ad fara í rafting. En NEI, vid vorum fost í midjum fjollunum thví thad hafdi verid grjóthrun, svo vid fórum ekki í raftingid. Fólkid var nú ekki lengi ad lýta á bjortu hlidarnar, eitthverjir voru búnir ad koma sér saman og spila á gítar og fleiri hljódfaeri adrir ad syngja og allir hinir donsudu. En loksins eftir 8 tíma í thessum fjollum komumst vid til Mendoza, en vegna thessar miklu tafar var haldid beint til Bareloche.
(07-02-2013)
Komin til BARELOCE ! sem er stadur í fylkinu Ríó Negro. mjog vinsaell ferdamannastadur og mikil náttúrufegurd. Thegar krakkarnir útskrifasr hérna í Argentínu fara allir í útskriftaferd til Bareloche og er thad ferd sem einginn vill missa af. Vid stelpurnar sodudum hostelid sem var med útsýni yfir vatnid og fórum svo nidur ad vatni og sóludum okkur. Seinna um kvoldid fórum vid út á lífid enda er Bareloche thekkt fyrir naeturlífid alla daga.
(08-02-2013)
Voknudum snemma til thess ad fara í túristaferd um Bareloch, en tví midur komst einn einstaklingur ekki útaf skemmtilegum ástaedum sem verda ekki tekin framm. Vid fórum í svona túristabíl oll saman og var svona smá fyrirlestur. Fórum vid svo í skídavel upp í fjollinn og ég get ekki lýst hversu flott útsýnid var. Eftir flotta útsýnid fórum vid í bátsferd á tvaer eyjur og skemmtum okkur vel. Seinna um kvoldid keyptum vid súkkuladi enda Bareloche thekkt fyrir besta súkkuladid! Hittum svo skiptinemana í Bareloche og um kvoldid var svo komid af thví ad fara á annan skemmtistad.
(09-02-2013)
Thennan dag kom kona ad saekja okkur til thess ad fara med okkur í adra túristaferd. En thví midur vorum vid oll svo treytt eftir gaerkvoldis ad vid vorum eiginlega oll sofandi. Fórum á annan stad í Bareloche og fengum vid heyra adeins um sogu Bareloche. Um kvoldid tók svo vid 30 tíma rútuferd til Tucumán og kvoddum vid Bareloce.
(10-02-2013)
Á leidinni til Tucumán ákvádu sérstakir einstaklingar ad vera fyndnir og krota á andlitin á nokkrum adilum. Finnaka stelpan lenti reyndar í thví ad einn rútuthjóninn krotadi á hana og var hún ekki glod thegar hún vaknadi, en thad var frekar fyndid. Loksins komin til Tucumán og allir voda ánaegdir med ferdina, ég fékk ad vera 2 naetur hjá fjolskyldu Gumma og svo 3 hjá finnsku stelpunni í Tucumán til thess ad jafna mig adeins á thessum rútuferdum og ad skoda Túcuman.
Fjolskylda finnsku stelpunar fylgdu mér upp á rútustod eftir tímann minn í Tucumán og tók vid kvedustund. Eftir 14 tíma rútuferd til Buenos Aires var ég loksins komin heim til fjolskyldunnar minnar. En um kvoldid sast ég med theim og sagdi ad ég vildi skipta um fjolskyldu og ég aetladi ad fara á skrifstofuna daginn eftir og bidja um ad skipta,var tekid misvel í thad. Svakalega mikid vesen og tilfinninfaflaekjur.... 10 dogum eftir thetta samtal var skiptinemahittingur í Puerto Madero og skemmtu allir sér vel. Einnig var skellt einu Harlem Shake myndbandi og hitti ég fullt af nýjum skiptinemun og sjálfbodalidum. Daniel (sá sem er yfir sjálfbodalidunum í Buenos Aires) sagdi mér ad ég hefdi í mestalagi 1 og hálfan tíma til thess ad koma mér heim og pakka í toskurnar ádur en hann kaemi og sótti mig. Ég dreif mig eins og vitleysingur í nedanjardarlestina og svo í straetó, en thví midur tók ég vitlausann straetó thannig ad ég fór í hinum megin í hverfid mitt... en thad reddadist. Daniel kom svo med Paolo (swissnenski skiptineminn í Buenos Aires) og Soruh (bandaríska stelpan í Buenos Aires) og sotti mig. Kvaddi ég Leo og Cecelíu (fyrrum foreldrar mínir) en thví midur voru strákarnir ekki heima svo ég nádi ekki ad kvedja thá. Svakalega erfitt ad kvedja.. Vid forum svo oll heim til Soru H (Swissnenska stelpan í Buenos Aires) thar sem ég átti ad vera í eina nótt ádur en ég faeri til eitthverrar konu í viku ádur en ég faeri til nýju fjolskyldunnar minnar. Um hádegid fór ég í klukkutíma taxa til konunar, vodalega hress 67 ára gomul kona í fullu fjori. Ég er búin ad vera hjá henni í 6 daga og hún er aedisleg. Fer til nýju fjolskyldunnar minnar á morgun, ég er svoldid stressud. Thau búa í Puerto Madero og samanstendur hún af foreldrum og tveimur sysrtum sem eru 17 og 6 ára :)
Rafmagnid er búid ad fara 5 sinnum af hérna thessa 6 daga og skil ég mjog vel hvad sumir hérna thola ekki forsetann sinn. :D thangad til naest. KOMA INN MYNDIR SEINNA :D
-Ragnhildur
Saturday, March 9, 2013
Saturday, January 5, 2013
Jólablogg :)
Dansað og drukkið um jólin og áramótin
Sæl og blessuð, gleðilegt nýtt ár og ég vona að þið hafið haft það gott um
hátíðarnar.
Ég eyddi sem sagt jólunum með tengiliðnum mínum og fjölskyldu hennar í La
Pampa sem er annað hérað í Argentínu, því Host fjölskyldan mín ákvað að fara
til Cúbu og Mexico yfir hátíðarnar. Þetta var svoldið öðruvísi en samt sem áður
skemmtilegt, aðfangadagurinn hjá mér var bara frekar rólegur og við vorum í
sundlauginni allan daginn og í sólbaði. En um kl 6 á íslenskum tíma talaði ég
við familiuna á skype. Voða skemmtilegt að eyða jólunum með þeim og fylgjast
með öllu. Svo um 10 leytið fórum við til fjölskyldu eiginkonu pabba hennar. Og
þar var hellingur af fólki og flestir að dansa og hella í sig. Skrítin upplifun
að fólk sé að drekka og dansa á jólunum. En um 11 leytið var svo komið að því
að fá sér að borða og við borðuðum allskonar, t.d. snakk , brauð, og ýmislegt
fleira, en engin jólasteik. Svo um 12 leytið var svo komið að því að jólasveinninn
myndi koma og gefa krökkunum pakka. Allir settust í stofuna og einn strákurinn
hélt á skál og spýtu sem var notað til að búa til hljóð eins og í jólaklukkum. Allir
voða spenntir og að kalla á jólasveininn, eftir smá bið fóru svo allir út því
jólasveinninn var upp á þakinu á leiðinni til krakkana. Allir krakkarnir fengu einn pakka og meira að segja ég J En svo voru ekki fleiri gjafir. Það var ekki mikið um jólagjafir á þessum bæ, en jólin hér í Argentínu snúast ekki um pakka, heldur um að öll fjölskyldan komi saman og njóti samveru hvers annars. Svo fóru allir að dansa og skemmta sér, en um jólin og áramótin fara flestir á skemmtistaði og dansa og drekka alla nóttina og koma ekki heim fyrr en um morguninn. En ég ákvað að fara með bróður tengiliðs míns að hitta vini hans, ekki alveg í stuði að fara að djamma um jólin. Við fórum á lokaðan bar því vinkona hans var með lykla af staðnum. Við vorum sirka 11 að spila og hlusta á tónlist, og við vorum ekki komin heim fyrr en kl 7 um morguninn. Þetta voru Jól sem ég gleymi seint J
Að borða 12 vínber á að gefa þér lukku á nýju ári.
Seinasti dagurinn á árinu var hreint út sagt voða góður. Ég var búin finna
mér gott áramótaheit, búin að búa til dýrindis möndlugraut sem átti reyndar að
vera um jólin en ég hafði bara ekki tíma til að gera hann þá. Svakalega heitt
og allir í góðu skapi. Við vorum búin að fara í bæinn áður og um 6 leytið fór
ég í svakalegasta nudd sem ég hef á ævinni farið í. 70 ára gamall karl sem tók
svo vel á því að ég var öll að drepast eftir á haha. Ég talaði svo við pabba
Þegar það var verið að skjóta upp flugeldunum á Íslandi og horfði á með honum.
Held svo sannarlega að það sé ekki til svona mikil flugeldasýning eins og á
Íslandi. Allt landið þakið flugeldum, svakaleg sýning. Svo um 10 leytið vorum
við öll búin að sturta okkur og pússa. Ég skellti mér í leggins og bol því það
var svo heitt, ekki beint voða fínn klæðnaður fyrir áramótin. En svo var komið
að því að fá okkur að borða. Við borðuðum rækjur, kjöt, grænmeti og allskonar
rétti, voðalega gott. En fyrst fengum við öll 12 vínber, því það á víst að
veita manni lukku á nýju ári, en ef maður borðaði ekki öll vinberin myndi maður
ekki vera heppinn á nýju ári. En við borðuðum 12 vínber því árið 2012 var að
klárast og svona er þetta öll árin. En áður en við byrjuðum að borða fengum við
öll sitthvort spritt kertið og svo áttum við að óska okkur og kveikja á því. Þetta
gekk svo hringinn, voðalega táknrætt J Etir matinn
spiluðum við öll saman voða skemmtilegt. Og seinna um kvöldið fórum ég og
tengiliðurinn minn til vin hennar. Þar var öll fjölskyldan hans í ýmiss konar
leikjum, svaka stemming. Og auðvitað tókum við þátt, svo settust allir saman og
það var spilað á gítar og sungið. Vinur hennar tók meira að segja nokkur Írsk
dansspor fyrir áhorfendurna. Svo um kl 4 var ég orðin svoldið þreytt og ég fór
heim að sofa en tengiliðurinn minn varð lengur. Gaman að upplifa öðruvísi
áramót. J
Ég er búin að skoða mikið hérna í La Pampa, búin að fara á nokkra
skemmtistaði og hittinga. Liggja í sundlauginni og sóla mig, kúra með öllum 5
hundunum hérna á þessu heimili og skjaldbökunni Dorit á hinu heimilinu. Ég hef verið
hjá mömmu tengiliðs míns og eiginkonu mömmu hennar og bróður. En við höfum
einnig verið heima hjá pabba hennar og konu hans. Allt þetta fólk er voðalega
gott og ég á eftir að sakna þeirra. En ég er einnig spennt að hitta Host
fjölskylduna mína aftur. Ég hitti 2 skiptinema í gær sem eru staðsettir í La
Pampa, voðalega hressir, einn frá Finnlandi og hinn frá Þýskalandi. Fór einnig
í keilu og á morgun erum við að fara að sjá The Hobbit J og svo fer ég aftur til Buenos Aires.
Takk fyrir mig og gleðilegt nýtt ár J
Subscribe to:
Comments (Atom)