Saturday, January 5, 2013

Jólablogg :)


Dansað og drukkið um jólin og áramótin

Sæl og blessuð, gleðilegt nýtt ár og ég vona að þið hafið haft það gott um hátíðarnar.

Ég eyddi sem sagt jólunum með tengiliðnum mínum og fjölskyldu hennar í La Pampa sem er annað hérað í Argentínu, því Host fjölskyldan mín ákvað að fara til Cúbu og Mexico yfir hátíðarnar. Þetta var svoldið öðruvísi en samt sem áður skemmtilegt, aðfangadagurinn hjá mér var bara frekar rólegur og við vorum í sundlauginni allan daginn og í sólbaði. En um kl 6 á íslenskum tíma talaði ég við familiuna á skype. Voða skemmtilegt að eyða jólunum með þeim og fylgjast með öllu. Svo um 10 leytið fórum við til fjölskyldu eiginkonu pabba hennar. Og þar var hellingur af fólki og flestir að dansa og hella í sig. Skrítin upplifun að fólk sé að drekka og dansa á jólunum. En um 11 leytið var svo komið að því að fá sér að borða og við borðuðum allskonar, t.d. snakk , brauð, og ýmislegt fleira, en engin jólasteik. Svo um 12 leytið var svo komið að því að jólasveinninn myndi koma og gefa krökkunum pakka. Allir settust í stofuna og einn strákurinn hélt á skál og spýtu sem var notað til að búa til hljóð eins og í jólaklukkum. Allir voða spenntir og að kalla á jólasveininn, eftir smá bið fóru svo allir út því jólasveinninn var upp á þakinu á leiðinni til krakkana. Allir krakkarnir fengu einn pakka og meira að segja ég J En svo voru ekki fleiri gjafir. Það var ekki mikið um jólagjafir á þessum bæ, en jólin hér í Argentínu snúast ekki um pakka, heldur um að öll fjölskyldan komi saman og njóti samveru hvers annars. Svo fóru allir að dansa og skemmta sér, en um jólin og áramótin fara flestir á skemmtistaði og dansa og drekka alla nóttina og koma ekki heim fyrr en um morguninn. En ég ákvað að fara með bróður tengiliðs míns að hitta vini hans, ekki alveg í stuði að fara að djamma um jólin. Við fórum á lokaðan bar því  vinkona hans var með lykla af staðnum. Við vorum sirka 11 að spila og hlusta á tónlist, og við vorum ekki komin heim fyrr en kl 7 um morguninn. Þetta voru Jól sem ég gleymi seint J



Að borða 12 vínber á að gefa þér lukku á nýju ári.


Seinasti dagurinn á árinu var hreint út sagt voða góður. Ég var búin finna mér gott áramótaheit, búin að búa til dýrindis möndlugraut sem átti reyndar að vera um jólin en ég hafði bara ekki tíma til að gera hann þá. Svakalega heitt og allir í góðu skapi. Við vorum búin að fara í bæinn áður og um 6 leytið fór ég í svakalegasta nudd sem ég hef á ævinni farið í. 70 ára gamall karl sem tók svo vel á því að ég var öll að drepast eftir á haha. Ég talaði svo við pabba Þegar það var verið að skjóta upp flugeldunum á Íslandi og horfði á með honum. Held svo sannarlega að það sé ekki til svona mikil flugeldasýning eins og á Íslandi. Allt landið þakið flugeldum, svakaleg sýning. Svo um 10 leytið vorum við öll búin að sturta okkur og pússa. Ég skellti mér í leggins og bol því það var svo heitt, ekki beint voða fínn klæðnaður fyrir áramótin. En svo var komið að því að fá okkur að borða. Við borðuðum rækjur, kjöt, grænmeti og allskonar rétti, voðalega gott. En fyrst fengum við öll 12 vínber, því það á víst að veita manni lukku á nýju ári, en ef maður borðaði ekki öll vinberin myndi maður ekki vera heppinn á nýju ári. En við borðuðum 12 vínber því árið 2012 var að klárast og svona er þetta öll árin. En áður en við byrjuðum að borða fengum við öll sitthvort spritt kertið og svo áttum við að óska okkur og kveikja á því. Þetta gekk svo hringinn, voðalega táknrætt J Etir matinn spiluðum við öll saman voða skemmtilegt. Og seinna um kvöldið fórum ég og tengiliðurinn minn til vin hennar. Þar var öll fjölskyldan hans í ýmiss konar leikjum, svaka stemming. Og auðvitað tókum við þátt, svo settust allir saman og það var spilað á gítar og sungið. Vinur hennar tók meira að segja nokkur Írsk dansspor fyrir áhorfendurna. Svo um kl 4 var ég orðin svoldið þreytt og ég fór heim að sofa en tengiliðurinn minn varð lengur. Gaman að upplifa öðruvísi áramót. J






Ég er búin að skoða mikið hérna í La Pampa, búin að fara á nokkra skemmtistaði og hittinga. Liggja í sundlauginni og sóla mig, kúra með öllum 5 hundunum hérna á þessu heimili og skjaldbökunni Dorit á hinu heimilinu. Ég hef verið hjá mömmu tengiliðs míns og eiginkonu mömmu hennar og bróður. En við höfum einnig verið heima hjá pabba hennar og konu hans. Allt þetta fólk er voðalega gott og ég á eftir að sakna þeirra. En ég er einnig spennt að hitta Host fjölskylduna mína aftur. Ég hitti 2 skiptinema í gær sem eru staðsettir í La Pampa, voðalega hressir, einn frá Finnlandi og hinn frá Þýskalandi. Fór einnig í keilu og á morgun erum við að fara að sjá The Hobbit J og svo fer ég aftur til Buenos Aires.                                                

 
Takk fyrir mig og gleðilegt nýtt ár J

No comments:

Post a Comment