Sæl og Blessuð hér kemur bloggið sem þið hafið verið að bíða eftir :D
Ferðalagið var frekar langt til Argentínu, við skiptinemarnir flugum til New York og þurftum að bíða á flugvellinum í 10 tíma, við tókum eitthverskonar lest á næsta stað og í millitíðinni fórum við í sólbað, það var örgulega svona 30 stiga hiti þar :) við spiluðum PÓKO á flugvellin (notuðum boltan sem Benedikt vann í svona tæki til að veiða hluti). Við flugum svo til Buenos Aires og fluvélin þangað var frekar rúmgóð og svona 5 sæti saman :) Þegar við komum svo til Buenos Aires biðu AFS sjálfboðaliðarnir og tóku á móti okkur. Og þar hittum við skiptinema frá USA. Fórum svo í "CAMPIÐ" ég var eini íslendingurinn í mínu campi (það voru 3 þannig). Þar voru skiptinemar frá öllum löndum og ég deildi herbergi með bandarískri stelpu :) Það var rosa gaman,ég var eiginlega mest með bandarísku krökkunum og þau sögðu bara að ég væri líka ameríkani haha. Við fórum í marga leiki og svo um kvöldið var svona talent show og ég var með þeim. Kvöldið eftir var kareoki og svo dönsuðum við heil lengi og skemmtum okkur Argentine style :)
Sofnaði kl 2 um nótt og vaknaði kl 5 :/ var frekar þreytt en samt spennt að hitta fósturfjölskylduna :) við fórum á bus station og biðum þar og svo fóru sumir í rútum og flugvélum en ég var sótt. Það var allveg smá stress en þau voru svo hress og skemmtileg að stressið hvarf um leið :) Við fjólskyldan fórum svo á staðin sem pabbinn spilar íshokkí og við horðum og það var frekar gaman, hann skorðaði 2 mörk og liðið hans vann :) þar hitti ég svo besta vin hans og við töluðum heil lengi saman og það var ekki amalegt hvað hann var myndalegur :) en svo fengum við okkur að borða og guuð hvað kjötið er gott :), fórum svo í bío um kvöldið og ef ykkur finnst bíoið í egilshöllinni stórt þá finnst ykkur bíóið hér huge og skjárinn hér er svona 4 sinnum stærri en stærsti skjárinn í egilshöllinni. :) (horðum á batman) og myndirnar hér eru ensku með spænsku texta. BTW það er roslega kallt hérna það er náttúrlega vetur en það er úlpu veður og ég sem sagði að ég væri að fara í sólina haha. en það eru allir í skónum inni og húsin eru hituð upp með gasi held ég og það er rosalega kallt inni. Næsta dag þuust í gær fór ég með mömmu minni og við fórum að versla sem var voða gaman verslunarmiðstöðvarnar eru svo stórar og það er mac donald og hellingur meira að segja starbuks :D. pabbi minn keyrði mig svo í höfuðborgina svo ég gæri farið og skokkað haha þau eru svo nice og svo mikil krútt. guuð ég kveikti óvart í bolnum mínum haha, skoo ofnarnir hér eru ekki eins og heima heldur er svona eldur í ofninum og ég var með bolin á snúru og setti snúruna og nálægt haha það var frekar fyndið. er búin að gera svo mikið en nenni ekki að vera að skrifa allt og ég efast að þið nennið að lesa svo mikið. En ég er ekki byrjuð í skólanum en er að fara á eftir og tala við skólastjórann og svona og ég byrja á morgunn :) btw það eru trúðar út um allt á götunum að kasta boltum og svona þegar það er rautt ljós. en guuuð klósettinn það er sem betur fer venjulegt klósett þar sem ég bý, en oftast þarf maður að henda klósettpappírnum í rusl hliðin á . en það er samt svona mini klósett til að skola sig eftirá ef þið vitið hvað ég meina haha ojjj, en þetta er greynilega venjulegt hér. set myndir seinna inná :) sorry með stafsetnigarvillurnar er að skrifa hratt haha
Þamgað til næst Ragnildur :D :D :D
No comments:
Post a Comment