Thursday, August 16, 2012

Fjölskyldan komin í hús :D

Loksins loksins, eftir langa og óþolinmóða bið get ég loksins sagt að ég sé komin með fjölskyldy :D Hún samanstendur af hjónum og tveim strákum.

Pabbinn heitir : Leonardo Galbal og er 35 ára
Mamman heitir : Ana Cecilia Mac Corquodale og er 29 ára
Eldri bróðirinn heitir : Luciano Mendos og er 11 ára
Yngri bróðirinn heitir : Ramiro Mendos og er 9 ára



Fjölskyldan býr á höfuðborgarsvæðinu (Buenos Aires) svo það verður svaka steik á sumrin :D Ég fæ sér herbergi, þannig að ég þarf ekki að deila herbergi með strákunum :D Við erum búin að vera að tala saman og þau eru  voða spennt að fá mig, eru búin að segja mér í hvaða skóla ég fer og að ég muni útskrifast og fara í útskriftarferð :D :D :D þau tala ekki mikla ensku, þannig ég vona bara að ég muni komast fljótar inn í málið. Haha pabbinn var eitthvað að reyna  að tala við mig á íslensku og hann notaði google translate btw og það gekk frekar brussulega og ég skildi ekki neitt haha. Litli strákurinn Ramiro er voða spentur að fá að spila fótbolta með mér og ég sem hef ekki sparkað í bolta í rúmlega 2 ár haha. Þau ferðast voða mikið og þessi jól 2012 ætla þau til Mexico :D :D :D svo ég er að fara til Mexico. Mér líst bara nokkuð vel á þessa fjölskyldu og ég get ekki beðið eftir að fara til Argentínu eftir VIKU :D

 

Þangað til næst :D


No comments:

Post a Comment