Sunday, July 22, 2012

Fyrsta bloggið :D

Blessuð og sæl
Ég heiti Ragnhildur Guðmundsdótti og er 17 ára ung snót sem býr í Reykjavík og ég er að fara sem skiptinemi alla leið til Suður-Ameríku árið 2012-2013 í leit af ógleymanlegu ævintýri sem mun vera krefjandi og ótrúlega skemmtilegt. Ég er því miður EKKI komin með fjólskyldu, enda eru Argentínubúar ekkert að flýta sér í þessu.. taka bara öllu  mjög rólega og gera allt á seinustu stundu haha, en vonandi fer þetta að koma :D

Afhverju Argentína?
Þetta byrjaði allt með því að það komu sjálfboðaliðar frá AFS, tvær ungar stúlkur sem kynntu okkur krökkunum fyrir þessu og deildu reynslu sinni og sögðu okkur frá þeirra skiptinemadvöl og hvað þetta væri allt saman geðveikt. Ég var voða opin fyrir þessu enda var ég búin að pæla í þessu löngu áður :) En ég vissi ekki allveg hvert mig langaði að fara en það fyrsta sem mér datt í hug voru Bandaríkin og Amerískar bíómyndir. Hvernig það væri að búa í Ameríku og fá að upplifa allt sem maður hefur séð í bíómyndum haha.
En svo langaði mig fara eitthvert lengra, enda hef ég farið til Bandaríkjanna áður. Og þá hugsaði ég um Nýja-sjáland og Argentínu, en ég er svo hrifin af spænskunni að Argentína varð fyrir valinu. Ég er mjög ánægð með valið og ég get ekki beðið eftir að fá fjölskyldu og byrja þetta ævintýri af fullum krafti :D

                





No comments:

Post a Comment